Krónan: „ég varð hreinlega gapandi hissa“ - lítil innkaupasaga gefur til kynna að traust sé enn fyrir hendi

Stefán Jóhannsson lyfjafræðingur varð fyrir því í fyrradag að upplifa það sem margir hafa lent í. Hann var staddur í matvörubúð, búið að skanna inn vörur hans á kassanum en þegar hann ætlaði að borga, komst hann að því að veskinu hafði hann gleymt heima.

„Ég var staddur á kassa í Krónunni í Lindum rétt fyrir kvöldmat þegar ég átta mig á því að peningaveskið mitt var heima á Álftanesi. Ekki var í boði að borga með símgreiðslu á kreditkort. Ég sá fram á töluverða seinkun á kvöldmatnum en þá gerðist hið óvænta,“ segir Stefán.

Það sem gerðist næst var að ókunnur maður í röðinni sagðist ætla að borga vörurnar fyrir Stefán. Hinn ókunni gat þess að hann gæti bara millifært á hann síðar, rúmlega 8 þúsund.

„Ég varð hreinlega gapandi hissa, enda hef ég aldrei séð þennan mann áður. Tiltrú mín á hið góða í mannfólkinu hefur óneitanlega aukist við þessa upplifun,“ segir Stefán.

Hann hefur nú birt færslu um upplifun sína á facebook og tekur fram að þar sé hann að jafnaði ekki virkur en hafi þó séð sig knúinn til að segja fésbókarvinum frá þessu, þar sem hann varð svo undrandi á góðvilja samborgarans.

„Svona nokkuð hreyfir við manni og það eru ekki allir sem bera svona mikið traust til ókunnugrar manneskju, sem ég í þessu tilfelli var. Og eins og ég segi í færslunni þá hefur tiltrú mín á hið góða í mannfólkinu óneitanlega aukist við þessa upplifun,“ segir Stefán í samtali við Hringbraut.