\"Greiningardeild Arionbanka hefur lagt nótt við dag að undanförnu og kemur nú með tímamótaspá um framtíð íslensku krónunnar. Niðurstaðan er sú að krónan muni annaðhvort styrkjast eða veikjast.\"
Þetta segir Þráinn Bertelsson um nýja greiningu eða spá Arionbanka um framtíð íslensku krónunnar. \"Þessi banki er á margan hátt sérstakur,\" bætir Þráinn við.
Ummæli Þráins falla á facebook og kunna í fljótu bragði að virðast eins og hvert annað grín sem rithöfundurinn og fyrrum þingmaðurinn er þekktur fyrir.
En viti menn: Í greiningu Arionbanka á íslensku krónunni segir:
\"Raungengi krónunnar er nú í grennd við sögulegt meðaltal og í hagspá Greiningardeildar frá því í október er reiknað með því að raungengið styrkist áfram fram til árisins 2018. Aðalástæðan liggur í meiri verðbólgu hér en annars staðar, einkum vegna ríflegra launahækkana. Árið 2018 reiknum við með nánast engum viðskiptaafgangi en með hliðsjón af því hversu lítið innflutningur eykst í spánni með sterkara raungengi, kann að vera að við séum að vanspá vexti innflutnings á næstu árum. Slíkt myndi þýða viðskiptahalla í stað afgangs á seinni hluta tímabilsins.
Ef nafngengi krónunnar styrkist í ofan á lag, og þar með raungengi krónunnar, gæti innflutningur aukist enn frekar og viðskiptahallinn orðið meiri. Það þýðir að erlend staða þjóðarbúsins versnar og veikingarþrýstingur á krónuna eykst. Þess vegna gæti of sterkt raungengi, rétt eins og viðvarandi vaxtamunur, sáð í jarðveg síðari gengisveikingar. Ekkert er ókeypis.\"
Sennilega á það við greiningu greiningardeildar Arionbanka eins og annað sem frá bönkunum kemur.