Kristrún víkur Helgu Völu til hliðar

Logi Einarsson var kjörinn þingflokksformaður Samfylkingarinnar á fundi þingflokksins í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum.

Hann tekur við af Helgu Völu Helgadóttur en orðrómur hefur lengi verið um það að Kristrún hefði í hyggju að skipta henni út.

Logi er nýhættur sem formaður flokksins og hafði verið formaður síðan árið 2016. Logi er þingmaður Norðausturkjördæmis og tók Kristrún Frostadóttir við af honum nýlega.

Helga Vala Helgadóttir hafði gegnt stöðunni síðan kjörtímabilið hófst. Athygli vakti í síðustu viku þegar hún tók fram opinberlega að Samfylkingin skuldaði Sjálfstæðisflokknum frí, einungis örskömmu eftir að Kristrún hafði ekki viljað útiloka neitt í viðtali í Silfrinu.

Í tilkynningu flokksins segir að Þórunn Sveinbjarnardóttir hafi verið kjörin varaformaður þingflokks og Jóhann Páll Jóhannsson ritari þingflokks.

„Ég er þakklátur fyrir traustið og mun gera mitt besta við að leggja nýrri forystu í Samfylkingunni lið. Það eru spennandi tímar framundan,“ er haft eftir Loga.