Kristrún óttast að við munum vakna upp við vondan draum eftir nokkur ár

Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur og frambjóðandi Samfylkingarinnar til Alþingiskosninganna í haust, segir að hér á landi sé að festast í sessi krafan um að heimili komi sér upp fasteignasjóði fyrir unga fólkið. Spyr Kristrún fylgjendur sína á Twitter hvort þeir séu byrjaðir að safna í fasteignasjóð fyrir börn sín.

„Kröfurnar og áhyggjurnar verða því meiri sem börnin eru fleiri. Þetta er ekki barnvæn stefna,“ segir hún og bætir við að hér sé fólki seld sú saga að hver eigi að sjá um sig og sína, það sé ekki til neitt samfélag, aðeins einstaklingar og fjölskyldur.

„Allt saman eitt kapphlaup um hversu snemma er hægt að koma börnunum inn á fasteignastigann. Fólk á miðjum aldri er farið að hafa áhyggjur af sparnaði til að hjálpa börnunum sínum að eignast húsnæði. Fólk sem oft á tíðum á ekki digra sjóði en finnur til ábyrgðar gagnvart börnunum sínum í umhverfi þar sem fjárhagslegt bakland er farið að ákvarða lífshlaup fólks.“

Kristrún segir að við eigum hliðstætt dæmi í Bandaríkjunum þar sem eignastaða foreldra ákvarðar hversu góða menntun ungmenni fá. Foreldrar byrji að leggja fyrir í háskólasjóð um leið og barnið fæðist.

„Enda er það þekkt fyrirbæri þarlendis að fólk setji fyrir sig barneignir þar til það stendur fjárhagslega sterkum fótum. Það þarf að eiga fyrir lífi barnsins,“ segir Kristrún sem óttast að þetta geti haft slæmar afleiðingar í för með sér.

„Ef látið óáreitt gætum við vaknað upp við vondan draum eftir nokkur ár þar sem virkni fólks á vinnumarkaði er minni en áður og fæðingartíðni minni, því ofan á daglegan kostnað barnafjölskyldna bætist nauðsynlegur húsnæðisjóður fyrir afkomendur,“ segir Kristrún og bætir við að því sé haldið á lofti að tekjujöfnuður sé mikill hér á landi miðað við önnur ríki.