„Hún tekur bara punkta frá Bjarna Benediktssyni sem er bara fínt ef þú ert í Sjálfstæðisflokknum en hún hefur enga sjálfstæða skoðun á efnahagsmálum og fjármálum,“ segir Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, um Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í nýjasta hlaðvarpsþætti Chess after Dark en Viðskiptablaðið greinir frá.
Í þættinum var verið að ræða hvort Vinstri græn og Framsókn hafi afsalað sér völdum til Sjálfstæðisflokksins í gegnum fjármálaráðuneytið.
„Ég ætla ekki að gera lítið úr embættinu sem Katrín situr í. Það er auðvitað þannig að ef þú ert með forsætisráðherra í vinstri flokki og svo ertu með fjármálaráðherra í hægri flokki – þú lest bara út úr fjármálaáætlun mjög skýra hægri pólitík, það er bara þannig,“ sagði Kristrún.
Hún segir að Bjarni ræður miklu í stjórnarsamstarfinu og nefni dæmi um að Bjarni hafi sagt nei við aukið fjármagn í uppbyggingu húsnæðis.
„Þetta er bara fáránlegt, Bjarni hefur bara sagt nei. Það hefur eitthvað gerst þarna í millitíðinni því þremur vikum áður þá segir [innviða]ráðherrann bókstaflega í pontu að ‚ég er búinn að mæla með að það verði sett meira fjármagn í þennan lið‘ og það kemur ekki.“
Kristrún segir að sama staða sé uppi á teningnum hjá mörgum öðrum málaflokkum á borði framsóknarflokksins og vinstri grænna – það vanti fjármögnun. „Stór hluti af stjórnarsáttmálanum er vanfjármagnaður nema ef þau ætla í niðurskurð á móti.“
„Það er rosalega margt í kerfinu okkar sem tók á sig högg eftir hrun; heilbrigðiskerfið og innviðir. [...] Á einhverjum tímapunkti kemur líka að skuldadögum í þessu og það þarf að eiga sér stað einhver leiðrétting. Mér finnst það ekki endurspeglast í fjármálaáætlun,“ segir Kristrún.
„Að því leytinu til segi ég bara: Hann ræður - Bjarni ræður rosalega miklu.“