Kristófer flutti á eyði­býli: Geymir saltaða rollu í tunnu og étur upp úr henni

„Ég í minni spar­semi er yfir­leitt með saltaða rollu í tunnu og ég bara upp úr henni,“ segir hinn 22 ára gamli Kristófer Orri Hlyns­son í við­tali í Frétta­blaðinu í dag.

Ó­hætt er að segja að um at­hyglis­vert við­tal sé að ræða því þar kemur fram að Kristófer hafi fyrir tæpum tveimur árum flutt einn á eyði­býlið Syðsta-Mó í Flóka­dal í Fljótum til að gerast bóndi. Þegar Kristófer flutti á Syðsta-Mó átti hann tólf ær en í ár var hann komin upp í 350 ær.

Kristófer segir að bú­skapurinn sé ekki auð­veldur og viður­kennir hann að þetta hafi verið erfiðara en hann átti von á.

„Ég vissi svo sem alveg að það væri lítið upp úr þessu að hafa og að það yrði enginn ríkur af því að vera bóndi. Tekjurnar komu mér því ekki í opna skjöldu heldur frekar kostnaðurinn við bú­reksturinn. Það eru alls konar lúmsk út­gjöld sem ég hafði van­metið. Já, þetta er verra en ég hélt, en ég gefst ekkert upp.“

Bærinn hafði verið í eyði í sex ár þegar Kristófer flutti þangað en í­búðar­húsið var í fínu lagi. „Það voru eldri hjón sem bjuggu hérna en þau höfðu brugðið búi mörgum árum fyrr,“ segir hann.

Í við­talinu kemur fram að Kristófer hafi kynnst ástinni í lífi sínu, Söru Kristínu Sand­holt, eftir að hann flutti á bæinn. „Ég kannaðist að­eins við hana og fékk hana til að hjálpa mér við sauð­burðinn. Svo kviknaði ein­hver neisti og hún bara fór eigin­lega ekkert,“ segir hann en sjálf er Sara bú­sett á Akur­eyri enda litla vinnu að hafa í sveitinni.

Kristófer horfir ekki á sjón­varp, vinnur bara og fer síðan að sofa. Þegar hann er ein­samall er mat­seðillinn ekki mjög fjöl­breyttur. „Ég í minni spar­semi er yfir­leitt með saltaða rollu í tunnu og ég bara upp úr henni. Svo finnst mér gott að eiga heima­gerð bjúgu í frysti,“ segir hann.

Þetta at­hyglis­verða við­tal má lesa í heild sinni hér.