Kristjana vill láta bólusetja börnin strax: „Óhjákvæmilegt að sum muni veikjast illa“

Dr. Kristjana Ásbjörnsdóttir, lektor í faraldsfræði við Háskóla Íslands, segir að fólk eigi að láta bólusetja börn sín gegn Covid-19 strax við fyrsta tækifæri.

Fréttablaðið greinir frá þessu og vísar meðal annars í færslur frá Kristjönu um málið á Twitter. Hún hefur meðal annars skoðað ný gögn frá Suður-Afríku og Bandaríkjunum sem sýna fram á mikla aukningu á innlögnum meðal barna vegna Omicron-afbrigðisins. Mest er aukningin meðal barna undir fimm ára en einnig meðal óbólusettra barna á aldrinum 5 til 12 ára.

Kristjana bendir á að ekki sé þar með sagt að afbrigðið leggist af meiri þunga á börn, þó að það sé ein skýring. „Önnur [skýring] er bara sú að lítil prósenta af mjög stórri tölu er stór tala og börn hafa lægsta bólusetningarhlutfallið og mestu smithættuna í samfélögum þar sem bólusetningar bjóðast.“

Hún bendir meðal annars á að Omicron-afbrigðið sé mjög smitandi og valdi sprengingu í smittölum.

„Ef öll börn á Íslandi smitast er óhjákvæmilegt að sum muni veikjast illa,“ segir hún og bætir við: „Nú ætti að drífa í framkvæmd bólusetningar fyrir börn.“

Nánar má lesa um málið á vef Fréttablaðsins.