Kristján Viðar er látinn

Kristján Viðar Júlíusson, sem sýknaður var af aðild að Guðmundar- og Geirfinnsmálum í Hæstarétti árið 2018, er látinn, 65 ára að aldri.

Fréttablaðið greinir frá andláti hans. Þar kemur fram að samkvæmt Íslendingabók hafi hann látist þann 7. mars síðastliðinn.

Kristján var tvítugur þegar hann var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á hvarfi Guðmundar. Var hann í gæsluvarðhaldi í 1.522 daga samtals og dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir aðild að dauða Guðmundar og Geirfinns.

Kristján var sem fyrr segir sýknaður í Hæstarétti í september 2018 í kjölfar endurupptöku málsins. Hann fékk rúmar 200 milljónir króna í bætur vegna málsins í byrjun síðasta árs.

Frétt Fréttablaðsins.