Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur tekið bráðabirgðaákvörðun um að íslenska ríkið hafi gerst brotlegt við reglur EES um mat á umhverfisáhrifum þegar það breytti lögum um fiskeldi í október 2018. Þá breytti Alþingi lögum um fiskeldi með frumvarpi sem samþykkt var samdægurs og eftir afar takmarkaðar umræður á Alþingi, en málið hlaut nokkra gagnrýni á þeim tíma.
Landvernd vekur athygli á þessu í tilkynningu en ítarlega er fjallað um málið á Eyjunni.
Með frumvarpinu var sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra heimilað að gefa út bráðabirgðarekstrarleyfi til 20 mánaða til fiskeldisfyrirtækja. Ekki er gert ráð fyrir því að slík bráðabirgðaleyfisveiting fari í umhverfismat eða að almenningur og samtök almennings geti komið sjónarmiðum sínum að áður en leyfi er veitt. Lögin útiloka enn fremur að leyfisveitingin sé kærð til óháðs og hlutlauss aðila á borð við úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Stjórn Landverndar skoraði strax á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra að láta af lagasetningunni af þeim ástæðum sem ESA hefur nú fallist á. Ekki var orðið við því.
Ítarlega er fjallað um málið á Eyjunni