Kristján segir spillinguna meiriháttar: „Fimm milljónir króna á ári í húsaleigu yfir eitt fjórhjól“

Kristján Hreinsson skáld hefur undanfarna mánuði borið Tómas Knútsson, forsvarsmann Bláa hersins, þungum sökum. Kristján skrifar í dag aðsenda grein sem birtist í Fréttablaðinu þar sem hann kafar ofan í ársreikning samtakanna fyrir árið 2021.

„Með hinum nýja ársreikningi sannast það sem ég hef haldið fram: Blái herinn stundar svindl og svínarí. Blái herinn greiðir himinháar fjárhæðir fyrir nánast enga vinnu. Eigandi Bláa hersins notar samtökin sem fjáröflunarleið fyrir sig sjálfan, hann lætur Bláa herinn greiða húsaleigu yfir eignir sem Blái herinn á ekki og eigandi Bláa hersins fer einstaklega frjálslega með sannleikann þegar kemur að afrekasögu samtakanna,“ segir Kristján í langri og ítarlegri grein sinni.

„Í fyrsta lagi kemur fram að styrkir til samtakanna nema nær 21 milljón króna fyrir árið 2021. Í öðru lagi kemur fram að Blái herinn á eina eign, fjórhjól sem kostar 800.000 krónur. Í þriðja lagi kemur fram að Blái herinn greiðir nær fimm milljónir króna í húsaleigu. Í fjórða lagi kemur fram að Blái herinn hafi greitt 9.000.000 krónur sem launagreiðslur og verktakalaun. En samtökin söfnuðu einungis 15 tonnum af rusli. (Tölur um tonnafjölda eru þó á reiki),“ segir Kristján sem varpar fram eftirfarandi spurningum:

„Er það verjandi að greiða nær hálfa milljón króna í húsaleigu á mánuði yfir eitt fjórhjól? Ef það er ekki verjandi þá má spyrja: Fyrir hvern er Blái herinn að greiða húsaleigu? Er verið að greiða húsaleigu yfir eignir Fálkaorðuhafans Tómasar Knútssonar? Ef svo er, þá má spyrja: Hvernig í ósköpunum er það réttlætanlegt að peningar frá ríki, bæ og fyrirtækjum séu notaðir til að greiða húsaleigu fyrir Fálkaorðuhafann Tómas Knútsson? Hverjum greiðir Blái herinn nær eina milljón á mánuði í verktakalaun? Hvernig fer svínaríið fram?“

Í grein Kristjáns, sem má lesa í heild sinni í Fréttablaðinu í dag, segir hann að Blái herinn fái greiddar tæpar tvær milljónir króna fyrir hvert safnað tonn.

„Nýr ársreikningur Bláa hersins sýnir sannleikann: Blái herinn greiðir fimm milljónir króna á ári í húsaleigu yfir eitt fjórhjól. Blái herinn greiðir níu milljónir króna til ónafngreindra aðila sem þóknun fyrir að safna u.þ.b. 11 tonnum að rusli. Stjórn Bláa hersins þarf að átta sig á því að svikaferli Fálkaorðuhafans Tómasar Knútssonar er að ljúka. Stjórnin er ábyrg og ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að opinbera sannleikann. Ég leyfi mér að efast um það að landsmenn vilji gefa Bláa hernum kost á að koma óorði á íslensk náttúruverndarsamtök,“ segir hann meðal annars.