Kristján Jónsson, íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu, klórar sér í kollinum yfir regluverki KSÍ en eftir landsleik Íslands og Ungverjalands í fyrradag freistaði blaðið þess að ræða við Berglindi Björg Þorvaldsdóttur sem skoraði sigurmark Íslands í leiknum.
„Sjálfsagt hafa einhverjir lesendur blaðsins velt því fyrir sér hvers vegna ekki var leitað viðbragða Berglindar Bjargar Þorvaldsdóttur. Hún skoraði markið mikilvæga en hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliðinu. Mér þykir því eðlilegast að upplýsa lesendur um að við fengum ekki að ræða við Berglindi að leiknum loknum,“ segir Kristján í pistli í íþróttakálfi Morgunblaðsins í dag.
Hann segir að blaðið hafi fengið þau skilaboð að ekki væri í boði að ræða við Berglindi né fyrirliða liðsins, Söru Björk Gunnarsdóttur og var ástæðan sögð sú að þær höfðu báðar farið í sjónvarpsviðtal.
„Tengiliður okkar bauð okkur að ræða við aðra leikmenn, og var hjálplegur við að bjarga því, en þarna virðist vera einhver dreifiregla hjá KSÍ. Leikmenn fari ekki í fleiri en eitt viðtal eftir landsleiki. Mun það einnig hafa verið gert eftir umspilsleikinn hjá körlunum í Búdapest. Við gátum verið með viðbrögð frá Söru á mbl.is og í Morgunblaðinu vegna þess að komið var á blaðamannafundi með henni þegar fyrir lá að sæti á EM væri í höfn.“
Kristján segist ekki hafa rekið sig á þessa reglu áður og kveðst lítið botna í henni.
„Í starfinu er ég í samskiptum við fleira íþróttafólk, og fleiri landslið, en knattspyrnufólkið. Hjá bæði HSÍ og KKÍ mætir manni það viðmót að starfsmenn reyna að bjarga flestum ef ekki öllum þeim viðtölum sem við óskum eftir. Hvort sem við höfum haft efni á því að fara utan á viðburðinn eða sitjum heima. Senda jafnvel sjálf viðtöl heim til að auka umfjöllun.“