„Ég lenti í mjög skrítnu og frekar alvarlegu atviki í dag,“ skrifar Kristján Páll Rafnsson á Facebook í dag.
„Ég var á gatnamótum við Stórahjalla í Kópavogi nánar tiltekið á bið við biðskyldu á móti N1 við Engihjalla. Ég sé mann á rafmagnshlaupahjóli koma á mjög mikilli ferð yfir ljósin á Nýbýlaveg (á götunni) Ég bíð náttúrulega því að jú það er skylda mín samkvæmt umferðarlögum. Hlaupahjólamaðurinn begir í átt að bílnum mínum og ætlaði líklega að sveigja aftan við hann og fara upp á gangstétt en ekki halda áfram eins og ég gerði ráð fyrir. Kappinn var á svo mikilli ferð að hann nær því sennilega ekki og keyrir inn á afturbrettið á litlu Dacia dollunni minni, höggið var gríðarlegt! Mér dauðbrá og rík út úr bílnum,“ skrifar Kristján og birtir myndir með færslunni sem má sjá hér að neðan.
„Maðurinn lá í kvölum í götunni. Ég spurði hvort að hann gæti hreift sig, hvort ég ætti ekki að hringja á sjúkrabíl? Maðurinn stóð upp með látum (greinilega í sjokki) og gargaði á mig spurningu, Hvað er eiginlega að þér?! Síðan tók hann hlaupahjólið og stakk af.. Ég fór á eftir honum en lenti á rauðu ljósi og týndi honum. Ég leitaði um allt. Hann var sennilega á allavega 60km hraða á þessari græju sinni. ER ÞETTA LÖGLEGT? Maðurinn er sennilega um eða undir 20 ára aldri, hann var í rauðri úlpu, svörtum buxum á svörtu "mega speed" hlaupahjóli með alvöru mótorhjólahjálm og með hníf í slíðri í beltinu (líklega vinnu hnífur) Ef einhver þekkir til þessa drengs, þá fyrst og fremst látið hann fara á slysó því hann er klárlega meiddur eftir þetta mikla högg. Einnig má senda ábendingar til mín í pm eða á lögreglu,“ skrifar Kristinn að lokum,