Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., og eiginkona hans, Auðbjörg Steinbach, eru sýkt af kórónaveirunni eða COVID-19. Á vef DV kemur fram að þau hafi smitast á Íslandi. Auðbjörg segir í samtali við DV að hún hafi fengið smitið frá vinkonu sinni sem var nýkomin heim úr skíðaferð erlendis frá.
Auðbjörg sagði einnig að henni heilsaðist ágætlega þrátt fyrir veikindin. Auðbjörg sagði:
„Ég hef svo mikla trú á þessu liði hjá okkur. Það eru allir rökfastir og það er svo gott eftirlit hjá þeim. Það er hringt daglega og fylgst með. Ég veit ekki hvernig hægt væri að hafa það betra.“