Kristján fékk þungan dóm: „Á sama tíma er bara slegið á puttann á kynferðisbrotamönnum“

Kristján Már Guðnason var á dögunum dæmdur í 15 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ekið bifreið sinni sviptur ökuréttindum. Hann játaði brotið, ákvað að verja sig sjálfur og var dæmdur í 15 mánaða fangelsi sem fyrr segir. Kristján er vægast sagt ósáttur við málalyktir.

Fréttablaðið fjallar um málið í dag og er þess getið að Kristján hafi áður þurft að sæta refsingu vegna aksturs án ökuréttinda. Dómari taldi ekki tilefni til að skilorðsbinda dóminn að þessu sinni.

„Það er ekki aftur snúið en ég er þakklátur fyrir að geta sagt það að ég hafi ekki valdið neinum skaða eða slysum á þessum ferli,“ hefur Fréttablaðið eftir Kristjáni. Bendir hann á að hann hafi ekki einu sinni verið tekinn fyrir ölvunarakstur.

„Ég var í raun stoppaður fyrir að kíkja út í búð. Á sama tíma er bara slegið á puttann á kynferðisbrotamönnum sem fremja endurtekin brot.“

Kristján segist ætla að áfrýja dómnum og hann dregur ekki fjöður yfir það að brot eins og hann framdi eigi að vera refsiverð.

„Auðvitað á þetta að vera refsivert en það mætti líka taka inn í dæmið að það hjálpi kannski ekki alltaf að refsa mönnum og fangelsa þá. Það mætti heldur reyna að komast að því hvað sé að valda því að einstaklingur brjóti trekk í trekk af sér á sama hátt.“

Frétt Fréttablaðsins í heild sinni.