Kristján Einar Sigurbjörnsson, oft kallaður Kleini, lenti í öndunarvél á dögunum. Kristján er í viðtali við Fréttablaðið þar sem hann segir frá atvikinu og handtöku á Húsavík í gær sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum.
„Lífið hefur ekki verið dans á rósum hjá mér síðustu árin, ég er mennskur og undir nægilega miklum áföllum brotnar hver manneskja,“ segir Kristján um ástæður þess að hann endaði í öndunarvél.
„Ég endaði í öndunarvél því ég átti moment of weakness þar sem ég framkvæmdi án þess að hugsa, ég endaði í öndunarvél því ég sá enga aðra leið,“ segir Kristján. Hann hafi alla ævi haft svör við öllum hlutum þar á meðal spurningunni um sjálfsvíg.
„En þarna gafst ég upp og ég mun ekki skammast mín fyrir það og mun standa aftur upp, sama hvað fólk heldur eða finnst um mig, gott eða slæmt þá í enda dags fer ég að sofa eins og venjuleg manneskja og ég vakna og bursta tennurnar eins og venjuleg manneskja og ég brotna eins og venjuleg manneskja og ég mun standa aftur upp sem stærri og sterkari manneskja,“ segir hann meðal annars.
Greint var frá því í gærkvöldi að Kristján Einar hefði verið handtekinn á gamlársdag og aftur á Húsavík í gær. Í samtali við Fréttablaðið segir Kristján að handtakan á Húsavík hafi verið vegna gruns um ölvunarakstur, „Þeir tóku mig í blástur og fíkniefnapróf og ég kom hreinn úr öllum testum,“ segir hann.
Viðtalið við Kristján Einar má nálgast á vef Fréttablaðsins.
Ef þér eða einhverjum sem þú þekkir líður illa skaltu leita þér hjálpar. Píeta samtökin eru opin allan sólarhringinn s: 552 2218, einnig Hjálparsími Rauða krossins s: 1717, einnig er hægt að fá aðstoð í netspjallinu á 1717.is