Kristján Berg Ásgeirsson, sem er oftast kenndur við Fiskikónginn, lætur sjómenn heyra það í færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í morgun.
„Mjög margir sjómenn sem eru algerir fokking DRULLUSOKKAR. Að dirfast til þess að senda íslenskt hráefni til mín í þessum umbúðum. Þetta er ógeðslegt og fyrir neðan mína virðingu fyrir íslensku hráefni,“ segir hann.
Eins og meðfylgjandi myndir bera með sér virðist hreinlæti í einhverjum tilfellum vera ábótavant þegar verið er að senda fisk í fiskbúðir. Birtir Kristján myndir af grútskítugum kassa sem fiskur var í og er hann allt annað en sáttur – og er það skiljanlegt.
„Þið sjómenn sem gerið þetta. HÆTTIÐ að stunda sjómennsku, þið eruð bara sóðar og eigið ekki að umgangast matvæli. Ég er búinn að berjast við þetta í tugi ára, að fá hreinar umbúðir.
Fiskmarkaðirnir hlusta líka takmarkað á mig,“ segir Kristján sem vill meina að sökin sé þeirra líka.
„Þeir sjá um að vigta hráefnið og allur fiskurinn fer í gegnum þá, þið vigtið og sendið hráefnið til mín. Ég vil hafa það þannig, að þegar fiskmarkaðsmennirnir sjá svona viðbjóð, þá eigi þeir að grípa í taumanna og stoppa þetta.“
Kristján segir að það hafi þeir því miður ekki gert, að minnsta kosti ekki nógu vel og mikið. „Fiskmarkaðirnir eru jú misjafnir. En þetta er ekki boðlegt lengur. Það á að sekta þessa menn/báta um stórar fjárhæðir.“
Kristján segir að í dag hafi fjórir kassar komið sem eru ógeðslegir. Hann segist ekki ætla að láta nöfnin á bátunum í þetta skipið en fullyrðir að það verði gert næst.
„Þetta þarf að stoppa. STRAX. Ég er öskureiður og búinn að fá nóg af sóðaskap skussanna. Þið eruð að skemma íslenskan sjávarútveg. Það er fullt af sjómönnum sem gera hlutina mjög vel og þið skemmið fyrir meirihlutanum, það er því miður ekki ásættanlegt. Hér eftir kalla ég ykkur drullusokka. Í guðanna bænum finnið ykkur starf sem hæfir ykkar kunnáttu. Kveðja Fiskikóngurinn.“
Myndir af þessu má sjá í færslu Kristjáns hér að neðan:
Mjög margir sjómenn sem eru algerir fokking DRULLUSOKKAR. Að dirfast til þess að senda íslenskt hráefni til mín í...
Posted by Kristján Berg on Mánudagur, 26. apríl 2021