Kristján Berg Ásgeirsson, sem rekur Fiskikónginn, er allt annað en sáttur við RÚV eftir umfjöllun miðilsins um hringorma á dögunum.
RÚV sagði frá því í vikunni að lifandi hringormar finnist í fólki hér á landi á hverju ári. Dæmi séu um að lifandi hringormur hafi fundist í bleyju barns. Rætt var við Karl Skírnisson sníkjudýrafræðing sem sagði að ormarnir kæmu alla jafna úr þorskfiskum, síld eða uppsjávarfiskum.
Kristján segir að fréttaflutningur sem þessi sé ekki af hinu góða enda meiri líkur á að fá lottóvinning, eða geimskip í hausinn, en að veikjast eftir að hafa borðað fisk.
„Þessi umræða er til þess fallinn að fólk sækist meira í skyndibitamat. Eitthvað sem íslenska þjóðin þarf ekki á að halda. Við eigum ferskan fisk, íslenska villibráð, sem syndir allt í kringum landið. Er hægt að borða meiri gæði, betri mat en íslenskan ferskan fisk? Ef svo er, þá þætti mér vænt um að heyra hvaða ofurfæði það er,“ segir hann.
Hann er ósáttur við RÚV og segir að stofnunin sé í raun að „gera uppá bak“ í fréttaflutningi sínum.
„Það er annað hvort fréttir af Landspítalanum sem er í fréttum, neikvæðar fréttir (er ekki hissa á að fólk vilji ekki vinna þar, þar sem það eru stanslausar leiðinda fréttir þaðan, 95% af þeim eru neikvæðar.) eða þá fréttir af kindum/rollum eða dýrum, einhver krúsíbjörn að leika sér í snjó í dýragarði, eða rolla sem er með 4 horn. Held að RÚV ætti að taka sig saman í andlitinu og birta jákvæðar fréttir.“
Kristján segir að núna sé kominn tími til að snúa blaðinu við, borða holla íslenska fæðu, hætta að flytja inn alls konar draslmatvöru og styðja við íslenska framleiðslu. „Íslenskur fiskur á að vera þar efstur á blaði,“ segir hann og bætir við að með því gæti verðbólgan líka hugsanlega þokast niður á við.
„Eins og fram kom í fréttum um daginn, þá er áunnin sykursýki orðið vandamál. Get fullvissað ykkur um að þið fáið ekki áunna sykursýki við að borða ferskan íslenskan fisk. Íslenskur fiskur er ekki niðurgreiddur eins og lambakjötið, þar eru ríkisstyrkir til bænda nokkrir milljarðar á ári. Við sem seljum fisk, þætti vænt um að við fengjum þessa styrki, þó svo það væri ekki nema í eitt ár. Það þætti okkur sanngjarnt. Þetta er orðið gott.“