Kristján Berg ósáttur: „Er þetta eðlilegt verð?“

Kristján Berg Ásgeirsson, oftast kenndur við verslunina Fiskikónginn, segir farir sínar ekki sléttar. Hann deilir mynd á Facebook-síðu sinni af einnota plasthönskum sem honum finnst hafa hækkað heldur mikið í verði.

Óhætt er að segja að eftirspurnin eftir einnota hönskum hafi aukist í kórónuveirufaraldrinum sem gert hefur jarðarbúum lífið leitt síðustu tólf mánuði eða svo. Svo virðist vera sem eftirspurnin hafi leitt af sér hærra verð á hönskunum – að minnsta kosti er Kristján að borga margfalt meira fyrir hvern hanska í dag en hann gerði fyrir tveimur árum.

Í færslu sinni segir hann: „Fyrir 2 árum greiddi ég 5 kr fyrir hvern hanska. Núna er verðið 40 kr fyrir hvern hanska (4000kr kassinn. 100 stk pr kassa) Er þetta eðlilegt verð?

Kristján bætir því svo við að starfsmenn Fiskikóngsins noti nokkra kassa á dag og því munar verulega um þessa verðhækkun, sérstaklega þegar horft er yfir nokkurra mánaða tímabil.