Kristján Berg fiski­kóngur stígur þung spor í dag: „Stór tár renna niður kinnar mínar“

Kristján Berg, betur þekktur sem Fiski­kóngurinn, greinir frá því á Face­book að ein elsta fisk­verslun landsins lokar á Höfað­bakka á föstu­daginn.

„Fisk­verslun okkar að Höfða­bakka 1.Lokar dyrum sínum.Síðasti dagur verslunarinnar verður föstu­­dagurinn 27 janúar.
Á­­stæða lokunar eru eftir­­farandi:
-hátt fisk­verð á fisk­­mörkuðum, á­­stæða er að stór­út­­gerðir eru að gleypa allan fisk og lítið af fiski berst inná fisk­­markaði, þannig að fisk­verð helst hátt.
-erfitt að manna allar stöður frá 7:00 til 18:30 alla virka daga.
-fólk verslar minni fisk, sem er ó­­­trú­­legt miðað við gæði og heil­brigði vörunnar
-hækkun alls og allra þátta rekstrar sem gera svona litla einingu ó­­­rekstrar­hæfa.
-öll að­­föng hafa hækkað, hvað sem það er. Um­­búðir, flutningur, olía, hveiti, hanskar, klósett­pappír....BARA ALLT,“ skrifar Kristján.

„Það er sorg­­legt hvernig svona verslun sem hefur verið starf­rækt frá árinu 1994, þurfi að leggja upp laupanna og loka. Þetta er bara fyrsta fisk­verslunin sem lokar. Það eiga fleiri fisk­verslanir eftir að loka. Það er klárt mál. Enda orðinn lítill grund­­völlur fyrir rekstri fisk­verslunar á Ís­landi í dag. Pizzu og co­capuffs kyn­­slóðin er að taka yfir og borðar minni fisk.

„Hús­­mæður landsins eru flestar úti­­vinnandi, mötu­neyti landsins bjóða orðið ekki lengur uppá fisk, ekki nema max 1x í viku og alltaf sama í matinn hjá flestum þeirra. Sem leiðir til minnkandi fisk­­neyslu á heimilum landsins. Unga kyn­­slóðin kann ekki að borða t.d. hrogn og lifur, létt­saltaða ýsu, gellur og kinnar og svo mætti lengi telja.Unga kyn­­slóðin er ekki lengur alin upp við þessa matar­­­menningu, sem er svo sárt að horfa uppá. Við erum því miður að gleyma upp­­runa okkar, á hverju við lifðum af, hvernig menning okkar varð til. Þetta er sorg­­legt á­­stand, að mínu mati. Það eru bara breyttir tímar og ekki lengur farið heim í há­­degis­mat þar sem mamma var klár með mat,“ skrifar Kristján.

„Fiskur var oft á borðum lands­manna, vegna þess að fólk hafði efni á að kaupa fisk. Fiskur var ódýr í gamla daga. Fiskur ætti ekki að kosta mikið hér á landi og ættu lands­­menn að njóta niður­­­greiðslu á fiski jafnt sem gert er t.d. með lamba­kjötið okkar. C.a. 7 milljarða niður­­­greiðsla ár hvert fer í að greiða niður lamba­kjöt sem er að mestu leyti flutt úr landi.
-7 milljarðar er meiri upp­­hæð en allir túr­istar sem koma hingað til lands, allir lands­­menn, öll fyrir­­­tæki, leik­­skólar, sjúkra­­stofnanir, veitinga­­staðir og öll fangelsi landsins greiða fyrir fisk­­meti sem selt er hér innan­­lands. Spáið í þessu!!! Þetta er bilun,“ segir Kristján.

Hann biður fólk að í­mynda sé ef hægt væri að fá allan þennan fisk frítt fyrir alla lands­­menn og túr­ista og sleppa niður­­­greiðslunni á lamba­kjöti í staðinn.

„Hvort myndir þú velja? Mitt svar: Fiskur. Takk. Það er ó­­sann­gjarnt gefið í landinu. Því miður, þegar kemur að niður­­­greiðslu mat­væla. Al­þingi stjórnar þessu. Ekki Fiski­­kóngurinn.
Þið getið kennt Al­þingi og stjórn­­mála­­mönnum um stöðu þessara mála í dag,“ skrifar Kristján.

Hann segir að fram­tíð Fiski­kóngsins sé þó ekki alveg úti.

„Við ætlum að reka eina stóra glæsi­­lega fisk­verslun, á Soga­vegi 3 í fram­­tíðinni, þar sem við bjóðum uppá landsins mesta úr­­val af fiski og fisk­réttum og öllu þessu gamla og góða. Hnoð­­mör, siginn fiskur, skata, gellur og kinnar, svo mætti lengi telja. Allt starfs­­fólk Höfða­bakka, hefur sam­þykkt að koma og vinna með okkur á Soga­vegi 3. Við vonumst til þess að sjá ykkur sem flest á Soga­vegi 3 og þökkum ykkur kær­­lega fyrir við­­skiptin á Höfða­bakka síðast liðin 29 ár. Allur fiskur, td humar, allar vörur, allt í verslun verður selt með 20% af­­slætti næstu 2 daga á Höfða­bakka 1,“ skrifar hann að lokum.