„Nú er vissulega sjónarmið að Íslendingar eigi ekkert með að reyna að troða sér framar í bólusetningarröðina en þó mætti vel huga að því að ræða við Rússa um Sputnik V bóluefnið sem er alveg jafngott og að sumu leyti betra en þau sem eru í boði - en koma seint.“
Þetta segir fjölmiðlamaðurinn Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, á Facebook-síðu sinni.
Heitar umræður sköpuðust í gær eftir að í ljós kom að Ísland, ásamt öðrum þjóðum, væri komið á bannlista Evrópusambandsins. Settar voru á einhverskonar neyðarreglur sem heimila takmörkun á útflutningi bóluefna og var Ísland eitt þeirra ríkja sem sambandinu er leyfilegt að stöðva útflutning á bóluefnum til. Síðar í gærkvöldi kom í ljós að þessi ákvörðun hefði engin áhrif á afhendingu bóluefna hingað til lands.
Kristinn – og eflaust fleiri til – vill þó að við ræðum við Rússa um bóluefni þeirra sem þótt hefur gefa ágæta raun. „Ef það er ekki gert, eru einungis pólitískar ástæður að baki,“ segir hann.
Hann segir að svo kunni vel að vera að þjóðin vilji ekki sjá þetta „drasl frá Pútín“ og segist hann bíða eftir að um þetta skapist umræður. „Og jafnvel að gerðar séu skoðanakannanir um afstöðu manna. Hugsa að þar muni endurspeglast ýmislegt forvitnilegt um þjóðina.“
Nú er vissulega sjónarmið að íslendingar eigi ekkert með að reyna að troða sér framar í bólusetningarröðina en þó mætti...
Posted by Kristinn Hrafnsson on Miðvikudagur, 24. mars 2021