Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, birtir myndband frá Keflavíkurflugvelli á Facebook-síðu sinni. Staðan á Keflavíkurflugvelli hefur verið nokkuð í umræðunni í ljósi Covid-smita en mörgum finnst troðningurinn þar vera fullmikill á sama tíma og reynt er að hindra útbreiðslu veirunnar með samkomutakmörkunum.
„Sviðsmynd þar skýr hugsun hefur einhvers staðar orðið útundan,“ segir Kristinn á Facebook-síðu sinni og lýsir stöðunni á flugvellinum.
„Allir komufarþegar til landsins eru fastir í flöskuhálsi í töskubeltasal að bíða í röð eftir að framvísa vottorðum um bólusetningu og covid próf. Þetta eru allt farþegar sem fengu ekki innskráningu í flug í brottfararlandi nema sýna sömu gögn á flugvelli ytra. Röðin vafði sig í slöngu fram og aftur meðfram öllum töskubeltum komusalar. Síðan ruddist fólk í gegnum raðirnar til að komast að töskunum sínum. Gegnumferðin tók um það bil klukkutíma,“ sagði hann.
Hann segir að hafi einhver verið með Covid í þessu kraðaki sé nokkuð víst að hann hafi náð að smita allnokkra þarna í salnum.
„Eftir nokkra daga vinnuferð til útlanda var þetta allra mesta covid hætta sem ég tel mig hafa verið í – sum sé við heimkomu. Það læddist að manni sá grunur að ástæðan fyrir því að maður er svo skikkaður í aðra sýnatöku innan 48 stunda sé til að athuga hvort maður hafi náð sér í smit í flöskuhálsinum í töskusalnum í Leifsstöð. Það væri að minnsta kosti röklegt og skynsamlegt í ljósi þess að ein mesta smithætta á landamærunum er vegna aðgerða til að koma í veg fyrir að smit berist inn í landið ...á landamærunum. Allt eðlilegt – eða þannig.“