Kristinn steinhissa á svarinu sem hann fékk frá lögreglu

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks og fyrrverandi fréttamaður á RÚV og Stöð 2, klórar sér í kollinum yfir viðbrögðum lögreglu eftir að hann sendi inn ábendingu um ökumann sem olli tjóni á dögunum.

Kristinn segir frá þessu á Facebook-síðu sinni þar sem hann deilir skjáskotum af samskiptum sínum við lögreglu.

Þannig er mál með vexti að Kristinn var að kveðja vin sinn, Árna Snævarr, á horni Skólavörðustígs og Bergstaðastrætis í vikunni þegar þeir urðu vitni að því er sendibifreiðastjóri ók niður steyptan stólpa.

„Auðvitað geta óhöpp af þessu tagi orðið en þegar við urðum þess áskynja að bílstjórinn ætlaði að aka á brott gengum við að bílnum og tókum myndir. Bílstjórinn steig út og Árni spurði hann hvort hann ætlaði ekki að tilkynna þetta tjón sem hann hefði orðið valdur að. „Þetta er ekkert tjón“, sagði maðurinn, vippaði sér upp í bílinn og ók á brott,“ segir Kristinn í færslu sinni.

Hann ákvað á þessum tímapunkti að senda myndir sem hann hafði tekið til lögreglu – eins og góðum borgara sæmir – og setja málið þar með í þeirra hendur með upplýsingum um hvar mætti ná í hann og Árna.

„Hafi ég orðið hlessa yfir viðbrögðum bílstjórans varð ég enn meira undrandi yfir viðbrögðum lögreglunnar,“ segir Kristinn sem birtir samskiptin eins og að framan greinir.

Á þeim má sjá þegar Kristinn sendir lögreglu ábendingu í gegnum Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu ásamt myndum. Svarið sem hann fær er svona: „Sæll Kristinn, Er þetta bifreið á þínum vegum? Kv. KT.“

Kristinn útskýrir að hann hafi einfaldlega orðið vitni að þessu ásamt félaga sínum. Hann hafi ákveðið að tilkynna tjónið til lögreglu þegar ljóst var að bílstjórinn ætlaði ekki að gera það. Lögreglumaðurinn sem svarar segist skilja það vel, en spyr svo hvort Kristinn hafi sjálfur tök á því að heyra í Reykjavíkurborg og láta vita af tjóninu. Kristinn furðaði sig á þessum viðbrögðum og útskýrði fyrir lögreglu að réttast væri að hún myndi hafa milligöngu um það.

„Nei ég hef ekki tök á því. Ef til vill frekar í ykkar höndum að láta borgaryfirvöld vita og benda á að þið hafið upplýsingar um hver ber ábyrgð á tjóninu.“

Kristinn veltir því fyrir sér í færslunni hvort hér sé að grassera einhver kúltúr í öllum lögum samfélagsins sem kalla má siðrof. Þá veltir hann fyrir sér hvort samhengi sé á milli skeytingarleysis bílstjórans og viðbragða lögreglu.