Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks og fyrrverandi fréttamaður á RÚV, segir að ekki sé að undra að þó nú liggi mikið við að koma bönkunum í hendur vildarvina.
Kristinn gerir fréttir gærdagsins að umtalsefni á Facebook-síðu sinni en greint var frá því í gær að samanlagður hagnaður Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans fyrstu þrjá mánuði ársins hafi verið 17,2 milljarðar króna. Landsbankinn hagnaðist um 7,6 milljarða, Arion banki um 6 milljarða og Íslandsbanki um 3,6 milljarða.
„Þeir sem eiga einhverja aura í bankanum fá enga vexti af þeim. Peningarnir eru lánaðir út í margfeldi og skila ofurgróða. Á þessum leikvelli eru því úrslitin þjóðin 0 - Gróðaliðið 17,2 milljarðar. Innlánseigendur, þeir sem öngla í sparnað, eru hafðir að fíflum og þjóðin er misvirt, féflett og smánuð.“
Kristinn vandar íslensku bönkunum ekki kveðjurnar.
„Þetta er skipulögð glæpastarfsemi. Ekki að undra þó að mikið liggi nú við að koma þessum maskínum í hendur vildarvina. Allir sáttir bara?“
Eins og greint hefur verið frá stendur til að selja Íslandsbanka. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði í fréttum RÚV á dögunum að undirbúningur fyrir sölu á hlut ríkisins í bankanum væri á áætlun og að líklega yrði hægt að auglýsa hlutinn til sölu í byrjun júnímánaðar, eftir rétt um mánuð.