„Hversu lengi ætla Reykvíkingar að láta bjóða sér að vera annars flokks borgarar í eigin landi?“
Þessari spurningu varpar Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, fram á Facebook-síðu sinni. Þar skrifar hann pistil sem ber yfirskriftina Hinir réttlausu Reykvíkingar.
Kristinn bendir á að þingmenn á höfuðborgarsvæðinu séu 35 talsins en væru 41 með jöfnu atkvæðavægi. Kjósendur á höfuðborgarsvæðinu séu því snuðaðir um sex þingmenn. Að mati Kristins er þetta misvægi atkvæða mannréttindabrot sem verður að laga.
„Nú er verið að ota fram hugmynd um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð flugvallarins í Reykjavík – sem er hrein og bein aðför að skipulagsvaldi sveitarfélagsins. Það ber að henda þessari hugmynd út um gluggann. Sérstaklega þegar í huga er haft að algerlega var hunsaður vilji kjósenda landsins árið 2012 þar sem 2/3 vildu jafnan atkvæðisrétt í landinu.“
Kristinn segir að nú sé einnig hnussað yfir þeirri kröfu við ríkisstjórnarborðið að Reykvíkingar fái ekki sína hlutdeild úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Með þeim órétti sé búið að hafa milljarða af Reykvíkingum á nokkrum árum.
„Þetta eru níu milljarðar sem ekki hafa skilað sér í skólakerfið þar sem borgarbörnin sækja sína menntun. Borgarbúar eiga kröfu á að fá þessa fjármuni til baka skilyrðislaust. Það er óþolandi misrétti fólgið í þessum ójöfnuði.“
Kristinn segir að það þurfi einnig að taka hraustlega til í félagsmálum nágranna Reykvíkinga á höfuðborgarsvæðinu og nefnir hann „afæturnar“ á Seltjarnarnesi sérstaklega í því samhengi.
„Sem stendur er borgarbúinn til dæmis að greiða sjö sinnum hærri fjárhæð í félagslega fjárhagsaðstoð en íbúinn á Seltjarnarnesi og í heild greiðir hver Reykvíkingur tvöfalt meira fyrir alla veitta félagsþjónustu en íbúinn í Kópavogi eða Garðabæ.“
Kristinn vindur sér næst að vegakerfinu og segir hann að það sé handónýtt á höfuðborgarsvæðinu. Raunar hafi það byrjað að æpa á endurbætur fyrir mörgum árum. Þetta viti allir sem búa við þau skertu lífsgæði að þurfa að sitja fastir í umferðarsúpu á hverjum degi að óþörfu.
„Í stað þess að verja tímanum með fjölskyldunni er setið í bílnum og hlustað á útvarpsfréttir um afrek í jarðgangnagerð utan höfuðborgarsvæðisins fyrir milljarðatugi, endalausa milljarða í mokstur uppúr Landeyjarhöfn eða greindarlaust tuð á Sögu um að holurnar í borgarmalbikinu séu allar á ábyrgð Dags.“
Kristinn endar pistilinn á þeim orðum að þegar hlustað er á Alþingi sé engu líkara en að íbúar höfuðborgarsvæðisins hafi verið snuðaðir um fleiri en þessa sex þingmenn sem þeir ættu með réttu að eiga rétt á.
„Sem borgarbúi krefst ég þess að þeir þingmenn sem þó eiga að heita fulltrúar Reykjavíkur berjist fyrir hagsmunum mínum og annara borgarbúa. Þetta er krafa um réttlæti.“