Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, sá hraunið í Geldingadal í dag. Hann hvetur yfirvöld til að vinna með almenningi, fræða hann um áhættur og opna leiðina ennfrekar að eldgosinu.
„Velbúinn við Ræfils Gosling. Allt fór vel fram og ekki sást vín á nokkrum manni. Það örlaði aðeins á galsafullri áhættuhegðun hjá yngsta aldurshópnum sem ég hef skilning á. Rifjaðist upp þegar ég fór 18 ára fyrst að gosi, þá í Heklu og fór eins nálægt hraunjaðrinum og hitinn leyfði,“ skrifar Kristinn.
Hann segir gosið hafa verið magnað sjónvarspil. „Ef það ætlar að lengjast í gosinu núna er rétt og sanngjarnt að gera sem flestum kleift að komast að því og opna leiðir þannig að gangan verði stutt. Jafnvel ferja fólk á ökutækjum gegn vægu gjaldi á þeim stígum sem liggja býsna nærri gosstöðvunum. Þetta gæti verið ákjósanleg fjáröflunarleið fyrir björgunarsveitir,“ skrifar Kristinn.
„Vinnið með fólkinu, fræðið það um áhætturnar og leyfið því svo sjálfu að meta hvort og hvernig það hagar sér. Ef einhver fer sér að voða, gerir hann það á eigin ábyrgð.“
Velbúinn við Ræfils Gosling. Allt fór vel fram og ekki sást vín á nokkrum manni. Það örlaði aðeins á galsafullri...
Posted by Kristinn Hrafnsson on Sunday, 21 March 2021