Kristinn gerði stólpagrín að Brynjari í þrumuræðu á Austurvelli – Sjáðu myndbandið

Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður innanríkisráðherra, hefur harðlega gagnrýnt viðbrögð fjölmiðlamanna við væntanlegum yfirheyrslum lögreglunnar á Akureyri á fjórum blaðamönnum. Brynjar hefur sagt fjölmiðlamenn sjálfhverfa í tengslum við það mál og þannig endurómað gagnrýni frá Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins.

Hann fór í annað rifrildi á samfélagsmiðlum í dag þar sem hann sagði að ekki mætti ruglast á almannahagsmunum og því sem ætti erindi til almennings: „ Það sem ég segi bara að lögreglunni er skylt að rannsaka sakamál og metur hvaða hvaða réttstöðu þeir fá sem geta hugsanlega veitt upplýsingar. Svo þegar lögreglan lætur 4 blaðamenn fá réttarstöðu sakbornings rísið þið upp á afturfæturna, án þess að vita nokkuð um málið, og látið það líta svo út að lögreglan sé að ofsækja ykkur að því að þið hafið birt efni úr illa fengnum gögnum sem eigi erindi við almenning,“ sagði hann.

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, tók þátt í mótmælum vegna yfirheyrslnanna á Austurvelli um helgina þar sem Brynjar bar á góma:

Hann sagði:

„Sem þótti ekki nógu góður af flokknum til að starfa á þessu þingi og hefur nú verið að tjóðraður við staur í túnfæti dómsmálaráðuneytisins, urrar og geltir að gestum og gangandi eins og vitfirringur, eins og nafni Páls símalausa, svokallaður blaðamaður þó hann sé kennari einhversstaðar í Garðabæ, og dylgjar um það að blaðamenn séu að eitra fyrir mönnum. Þá hlær blessaður maðurinn sem er tjóðraður við staurinn og þá klappar dómsmálaráðherra og þá fagnar formaður Sjálfstæðisflokksins. Þetta er veruleikinn í dag við okkur blasir.“