Kristinn Hrafnsson, blaðamaður og ritstjóri Wikileaks, gagnrýnir enn á ný ákvörðun Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis, um að framlengja almenna grímnuskyldu hér á landi, í nýrri Facebook færslu.
Þar birtir Kristinn mynd af útbreiðslu smita hér á landi af vef almannavarna. „Hér er mynd af covid sögu Íslands sem spannar ár. Hún sýnir tvær bylgjur (já, nei ég nenni ekki að tala um þrár – eða fjórar). Fyrri bygjan var sigruð með samhæfðum aðgerðum án almennrar skyldu til grímunotkunar. Sú seinni kraumaði lengi en tók síðan sitt skrið, steig og hneig á meðan grímuskylda var við lýði (mis hörð).“
Sjá einnig: Búnir að fá nóg: „Af hverju þarf að telja inn í verslanir og af hverju er grímuskylda?“
Kristinn segir að ætla megi að gríman hafi ekki ráðið úrslitum í framþróun bylgju tvö miðað við árangur í bylgju eitt. „Þetta er svona alþýðuvísindanálgun í anda hinnar frægu spurningar. „Um hvað reiddust guðin þá, er hér brann hraunið, er nú stöndum vér á?". Tekið skal fram að Snorri goði var hvorki útlærður jarðvísindamaður né guðfærðingur úr virtum háskóla og hefði verið úthrópaður á samfélagsmiðlum sem bábyljumaður ef hann hefði frestað jarðvist sinni um ríflega þúsund ár.“
Hann segir tiltrú á áhrifamætti grímunnar slíka að Þórólfur sjái enga ástæðu til að aflétta notkunarskyldu fyrr en líður að jólum, ef þá.
„Fullyrðir einnig að almenningur sé afar sáttur við að bera þær. Þeir sem efast eru svo úthrópaðir Trumpistar, Qanonsinnar, samsæriskenningasmiðir, þjóðóhollustugemlingar, fávitar eða jafnvel Miðflokksmenn. Ekki nokkur maður hefur fengið að viðra efasemdir í fjölmiðlum og yrði klipptur út ef það slíkt slysaðist út í beinni útsendingu.
Það er lítið pláss fyrir jafnvel hófsamar og gagnrýnar spurningar því í þessu sem öðru vex eyrað beint upp af ökklanum.“
Hann segir myndina sýna fortíðina. „En staða mála er þessi: Það hefur ekki fundist virkt smit utan sóttkvíar í mánuð. Verið er að bólusetja og á að vera búið að klára alla fullorðnu þjóðina eftir 3-4 mánuði. Ísland ER sóttkví. Það er jafnerfitt að komast inn í landið og fyrir gamlan kommúnista að fá dómarastöðu.“
Sérstakt hamfarablæti í samfélaginu
Kristinn viðurkennir að allt geti gerst. Ekki sé útilokað að snarbilaður íslamisti steli flugvél og klessi henni á Hallgrímskirkju eða að snjóflóð falli á byggt ból í júlí. Hið fullkomna öryggi felist í því að sitja með sætisólar spenntar, heima í stofusófa og spjalla við börnin inn í herbergjum á Zoom.
„Í samfélaginu kraumar eitthvað sérstakt hamfarablæti sem sprettur fram í hvert skipti sem einhverjir leyfa sér að spyrja eðlilegra spurninga um smitvarnarstefnu. Þetta er álíka og dæmin fjölmörgu um fólkið með lítinn lífstilgang sem umfaðmar sorgina ef hún bankar uppá og neitar að sleppa. Þetta er fólkið sem myndi hrækja á íslendinginn sem dirfðist að segja „þetta er búið“ þegar landsliðið er undir 0-3 og fimm mínútur eru til leiksloka.
Þrátt fyrir allt hvet ég fólk til þess að gleyma ekki gagnrýnni hugsun. Og umfram allt: andið eðlilega.“
Hér er mynd af covid sögu Íslands sem spannar ár. Hún sýnir tvær bylgjur (já, nei ég nenni ekki að tala um þrár – eða...
Posted by Kristinn Hrafnsson on Sunday, 21 February 2021