Kristinn: Fordæmi fyrir ökuníðinga ef Ingi og kjörstjórnin verða ekki ákærð

Öll yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis, þar á meðal dómarinn Ingi Tryggvason, neitar að greiða sekt vegna talningaklúðursins. Ingi var sektaður um 250 þúsund krónur og allir hinir um 150 þúsund. Ef sektin verður ekki greidd eiga þau von á ákæru.

Kristinn Hrafnsson hjá Wikileaks bendir á að ökuníðingur sem sé gripinn við að keyra á meira en 160 km hraða á þjóðvegi eigi yfir höfði sér sömu sekt og Ingi.

„Það er sama sekt og lögreglan setur á formann yfirkjörstjórnar í NV kjördæmi fyrir að brjóta lög og klúðra alþingiskosningunum,“ segir Kristinn á Facebook:

„Hinir í kjörstjórn fá 150 þúsund kall í sekt. Það er sama sekt og fyrir að aka á 130-140 km hraða. „

Hann segir að þetta gæti haft fordæmi:

„Fólkið neitar að greiða sektinar með þeim rökum að þetta hafi ekki verið ásetningsbrot. Kosningaklúðrið var óvart,“ segir Kristinn, þá gætu ökuníðingar líka notað sömu afsökun:

„Ef ekki verður ákært í málinu ættu aðrir sem fá á sig sektir að líta á það sem fordæmisgefandi. Hver hefur ekki ekið yfir hámarkshraða algerlega óvart?“