Kristinn Magnússon öryrki segir að lífið í landi tækifæranna sé ekki ekkert sérstakt. Færsla Kristins á Facebook hefur vakið talsverða athygli en þar birtir hann mynd af innistæðunni á bankareikningi sínum, en hún telur heilar 22 krónur.
Í byrjun færslu sinnar varar Kristinn við því að statusinn sem hann er að fara að skrifa sé niðurdrepandi. Segir hann að markmið pistilsins sé að útskýra stöðuna sem hann er í. Þannig hafi margir vina hans hafi haft samband við hann þar sem þeir hafa tekið eftir ákveðnum þunga og myrkri hjá honum, meðal annars á samfélagsmiðlum.
Færsla Kristins hefur vakið talsverða athygli og hefur fréttamiðillinn Trölli meðal annars fjallað um hann. Kristinn segist mjög þakklátur þeim sem hafa sýnt honum umhyggju og útskýrir hann að hann hafi glímt við þunglyndi og kvíða en haldið sér á floti með jákvæðni og hjálpsemi að leiðarljósi.
Þá segir hann að eiginkona hans hafi lítið getað hreyft sig að undanförnu eftir að hafa slasast á hné og eftir síðustu mánaðamót hafi ekkert verið eftir á reikningnum – og enn verið reikningar til að borga.
„Við höfum fengið smá aðstoð frá vinum og ættingjum til að kaupa mat og litla pakka fyrir yngstu börnin hennar. Fyrir þađ erum viđ mjög þakklát. Þannig er stađan og kannski skiljanlegt að kallinn sé ekkert dansandi af gleði að fara inn í hátíðarnar,“ segir hann.
Hann bætir við að hann sé ekki að leitast eftir vorkunn eða peningum, heldur einfaldlega að útskýra stöðu sína þar sem hann vill ekki valda óþarfa áhyggjum.
„Ég vil líka segja að ég hef gengið í gegnum verra og það birtir alltaf til. Læt fylgja mynd af "sparnaðinum" þennan mánuðinn. Svona er lífið fyrir öryrkja í "Landi tækifæranna" hans Bjarna Ben,“ segir Kristinn og vísar að lokum í fleyg orð Winstons Churchill sem sagði eitt sinn: „If you're going through hell, keep going.“