Kristín Sif Björgvinsdóttir, þáttastjórnandi á K100, vaknaði upp við vondan draum um helgina. Fjölmargir Íslendingar hafa lent í klóm lúsmýsins undanfarin sumur og miðað við frásögn Kristínar í þættinum Ísland vaknar í gærmorgun er lúsmýið sannarlega mætt á klakann.
Fjallað er um þetta á vef mbl.is.
„Ég lá í makindum mínum uppi í rúmi. Það var náttúrulega geggjað veður þegar ég vaknaði í gær og ég kúrði aðeins lengur. Klukkan var orðin níu. Svo opnaði ég augun og þá var verið að bíta mig. Lúsmý,“ er haft eftir Kristínu á vef mbl.is.
Hún segir að flugurnar bíti hana alltaf á sama stað, í fingurinn og á úlnliðinn og þá bíti þær einungis hana og dóttur hennar en láti son hennar vera.
„Ég setti viftuna á fullt í nótt inni í herbergi. Ég nenni ekkert að vera bitin. Þetta er alveg ógeðslega leiðinlegt,“ sagði Kristín meðal annars í þættinum.