Kristín svarar Adolf: Ekkert ó­eðli­legt að ferða­manna­staðir séu upp­bókaðir

Kristín Jóhanns­dóttir, safn­stjóri Eld­heima í Vest­manna­eyjum, segir í færslu í hópnum Bak­land ferða­þjónustunnar á Face­book að það sé ekki ó­eðli­legt að ferða­manna­staðir líkt og söfn séu upp­bókuð. Adolf Ingi Er­lings­son birti færslu í sama hóp í gær þar sem hann gagn­rýndi tvö söfn Vest­manna­eyja fyrir að loka fyrir al­­menningi, þar sem sjö manna hópur ferða­manna vildi ekki um­gangast aðra.

Adolf Ingi gagnrýnir tvö söfn í Vestmannaeyjum: Pirrandi að tvö aðal söfnin séu lokuð fyrir lítinn sjö manna prívat hóp

„Það eina sem skyggði á var að tvö aðal söfnin voru lokuð al­­menningi vegna þess að ein­hver sjö manna hópur þykist vera svo merki­­legur að hann getur ekki um gengist venju­­legt fólk. For­­stöðu­­menn beggja safnanna björguðu okkur samt þannig að við gátum skotist í gegn. Hvað finnst fólki um það að loka fyrir al­­menning til að þjónka ein­hverju VIP liði?“ skrifaði Al­freð.

„Ferða­þjónustu­fyrir­tæki sem og ein­staklingar sem vilja komast að á á­kveðnum tíma og degi bóka fyrir­fram. Þegar svo vill til að ó­bókaðir gestir koma þegar er upp­bókað verða þeir að bíða þar til losnar. Á vin­sælu safni eins­og Eld­heimum getur verið full­bókað á á­lags­tímum á háanna­tímanum,“ skrifar Kristín.

Hún segir að til að ó­þægindi yrðu sem minnst fyrir Al­freð og fleiri gesti sem ekki áttu bókaðan tíma í safninu hafi verið hringt í þá um leið og pláss losnaði. Þetta hafi verið gert þegar laust pláss var eftir hálf­tíma á safninu, með sér­stökum kjörum.

„Það kemur svo málinu ná­kvæm­lega ekkert við fyrir hvern var full­bókað !“