Óhætt er að segja að Kristín Soffía Jónsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi og framkvæmdastjóri Icelandic Startups, hafi varpað fram óvinsælli skoðun á Twitter-síðu sinni í gær.
Bolludagurinn var einmitt í gær og á rjómabollan sér fjölmarga aðdáendur hér á landi, eðlilega kannski. En Kristín Soffía er ekki aðdáandi bollunnar eins og kom berlega í ljós í færslu hennar.
„Bollur eru viðbjóður. Allar útgáfur. Í grunninn vond hugmynd. Bragðlaust deig með rjóma plús random hlutir til að reyna að láta þetta ganga upp. Ógeð.“
Þessi sprengja sem Kristín varpaði féll ekkert sérstaklega vel í kramið hjá fylgjendum hennar.
„Þú mátt velja í hvora lúguna þú skilar ríkisborgararéttinum,“ sagði til dæmis í einni athugasemd og með fylgdi mynd af tveimur póstkössum frá Póstinum.
„Hvar ert þú að kaupa bollur!? Kannast ekki við þessar lýsingar! Fer með þig í bolluleiðangur á næsta ári,“ sagði Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi ráðherra.
Kamilla Einarsdóttir lét Kristínu vita að hún væri á villigötum. „KRISTÍN SOFFÍA NÚ GENGUR ÞÚ OF LANGT!,“ sagði hún og Björt Ólafsdóttir, fyrrverandi þingmaður Bjartrar framtíðar, sagði: „Svívirðilegar ásakanir í garð bollunar!“ Haukur bætti svo um betur og sagði ásakanir hennar jaðra við landráð. „Þarna misstiru ríkisfangið...“ sagði hann.
Bollur eru viðbjóður. Allar útgáfur. Í grunninn vond hugmynd. Bragðlaust deig með rjóma plús random hlutir til að reyna að láta þetta ganga upp. Ógeð.
— Kristín Soffía (@KristinSoffia) February 20, 2023