Útvarpskonan Kristín Sif opnaði sig um af hverju hún trúi á drauga og andlegar verur í morgunþættinumÍsland vaknar í gær. Hún lýsti þar nokkrum skiptum sem hún telur að hún hafi orðið vitni af draugagangi.
Kristín upplifði flesta atburðina á sveitabænum Álftatungu á Mýrum þar sem vinkona hennar bjó en hún heimsótti hana oft sem barn og gisti með henni á bænum.
Í þættinum lýsti því ítarlega hvernig það virtist sem vinkona hennar væri ásótt af einhverri hræðilegri veru í fjölmörg skipti en saman komust þær að þeirri niðurstöðu að veran væri líklega tengd vinnumanni sem varð úti á svæðinu mörgum árum áður. Sá hafði verið grafinn fyrir utan kirkjugarðinn.
Hægt er að hlusta frásögn Kristínar í heild sinni hér.