„Ég finn fyrir eigin árásargirni og hún er talsverð. Ég er mjög árásargjörn þegar ég skrifa margt, en ég vil vera friðsöm, en ég vil eiginlega bara eyðileggja samfélagið. Ég er ekki meðmælt þessu samfélagi,“ segir Kristín Ómarsdóttir ljóðskáld.
Kristín var gestur Tengivagnsins á Rás 1 á mánudag og er fjallað um viðtalið við hana á vef RÚV.
Kristín sendi nýlega frá sér safn ljóða, átta ljóðabækur sem komu út á 30 ára tímabili. Ljóð hennar hafa einkennst meðal annars af ástum en einnig bræði gagnvart samfélaginu. Hún er þeirrar skoðunar að samfélagið sé óréttlátt og misskiptingin mikil.
„Það er ekkert jafnrétti. Fólk er á svimandi háum launum og fólk sem fær varla laun, einhverjar tvö hundruð þúsund krónur til að lifa af. Það getur það enginn. Svo eru aðrir með tvær milljónir á mánuði. Mér finnst þetta svimandi óréttlátt,“ segir Kristín og bætir við að hún vilji þetta ekki.
„Ég skil ekki af hverju fólk þarf að hafa aðra til að níðast á. Þá gildir það bara um allt, eins og af hverju fólk hefur ekki mátt elska þann sem það villl elska, konur að elska konur. Ég sé ekki fordómana minnka. Ég held það sé vaxandi fyrirlitning og hatur,“ segir hún meðal annars.
Hér má hlusta á viðtalið við Kristínu.