Kristín fann sig aldrei á Íslandi: „Fólk var að gera grín að mér án þess að ég vissi það“

Kristín Sesselja, sem nú tekur þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins, tjáir sig um líf sitt í þættinum Með Söngvakeppnina á heilanum.

Hún ræðir meðal annars það að hún hefur átt erfitt með að fóta sig á Íslandi. Henni langaði til Noregs til að komast í alþjóðlegan menntaskóla, og sótti um og var fyrst hafnað, en komst síðar inn.

„Ég veit ekki af hverju en fann mig ekki á Íslandi. Ég átti vini en svo entist sú vinátta ekki svo ég fékk þá flugu í hausinn að þessi skóli myndi bjarga öllu,“ segir hún.

Kristín ræðir einnig grunnskólagönguna, og þá sérstaklega lífið í félagsmiðstöðinni, en þar segist hún hafa fengið hvatningu frá starfsfólki

„Ég spilaði á félagsmiðstöðvardeginum, sumardeginum fyrsta, og fólkið sem var að vinna í þessari félagsmiðstöð á bara stóran þátt í hver ég varð því þau voru svo peppandi," segir hún, en tekið er fram að hvatningin frá jafnöldrunum hafi veirð lítil.

„Ég átti ekki mikið af vinum og fólk var að gera grín að mér án þess að ég vissi það, fyrir að semja lög og koma fram.“