„Þetta verður nú að teljast heldur óvenjulegt að þetta eru mjög margir skjálftar svona stórir sem mælast á stuttum tíma,“ sagði Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands, í fréttum RÚV klukkan 11.
Öflug skjálftahrina hefur riðið yfir suðvesturhorn landsins í morgun og mældist stærsti skjálftinn 5,7. Fjölmargir skjálftar yfir 4,0 að stærð hafa einnig mælst.
„Ég held að við höfum aldrei séð annað eins á Reykjanesskaganum. Þetta eru líklega um tíu skjálftar sem eru stærri en fjórir og nokkrir þeirra sem eru stærri en fimm,“ sagði hún.
Kristín sagði að í raun væri upptök hrinunnar á tveimur stöðum, annars vegar í Fagradalsfjalli og hins vegar í Núpshlíðarhálsinum þar sem öflugur skjálfti varð þann 20. október síðastliðinn.
Þegar Kristín var spurð hvað þetta þýddi, hvort eldgos væri mögulega í vændum sagði hún erfitt að segja til um það. „Við erum bara að fylgjast áfram vel með og verðum að spyrja að leikslokum hvernig fer.“
Í aukafréttatíma í hádeginu sagði Kristín að engin merki væru um eldgos. Nú séu starfsmenn meðal annars að mæla gas á svæðinu til að athuga hvort einhver ummerki séu um kvikugos. Varaði hún við því að möguleiki væri á stærri skjálftum meðan hrinan er í gangi. Sagði hún að skjálftar hefðu til dæmis ekki mælst á svæðinu frá Kleifarvatni að Bláfjöllum sem bendir til að þar gæti losnað um uppsafnaða spennu.
Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur sagði í viðtali við Fréttablaðið í morgun að skjálftar sem þessir geti verið fyrirboði um eldgos. „Þetta er á virku eldfjallasvæði og þá er alltaf möguleiki á að þetta endi með eldgosi,“ segir Ármann í viðtali við Fréttablaðið.