Kristbjörg var slegin yfir fréttunum um Axel og Jóhann: „Hvað er til ráða?“

„Eitt það besta við lífið er ástin.“ svona hefjast bakþankar Kristbjargar Þórisdóttur í Fréttablaðinu í dag, en þar fjallar hún um ást og frelsi.

„Við eigum öll sama rétt á því að njóta ástar. Kona sem ég kynntist einu sinni á lífsleiðinni kenndi mér að það geta ekki allir verið eins. Þannig er því farið með ástina. Hún breiðir sig yfir allt litrófið og mestu máli skiptir að við fáum að vera nákvæmlega sá eða sú sem við erum, eða eins og Páll Óskar syngur um, „ég er eins og ég er, hvernig á ég að vera eitthvað annað?“ “

Þá fjallar Kristbjörg um fréttir sem vöktu athylgi í vikunni. Tveir karlmenn sem voru að fagna brúðkaupsafmæli sínu urðu fyrir mjög óviðeigandi hegðun af hálfu þriggja ungra manna.

Það voru tón­skáldið Axel Ingi Árna­son og eigin­maður hans, Jóhann Frímann Rúnarsson, sem lentu í þessu og fjölluðu um málið í samtali við Fréttablaðið.

Kristbjörg segir að fréttirnar hafi slegið sig af laginu, og veltir fyrir sér hvað sé hægt að gera til að koma í veg fyrir slíka hegðun.

„Það sló mig eins og marga aðra landsmenn þegar ég heyrði af því að ungir menn á þrítugsaldri hefðu veist að tveimur mönnum sem voru að fagna brúðkaupsafmæli sínu, gelt á þá og látið niðurlægjandi orð falla.

Slík hegðun er ekki einsdæmi og því miður eru fleiri hinsegin einstaklingar að verða fyrir sambærilegri ofbeldishegðun. Hvað er til ráða til að bæta þessa ómenningu? Samtökin ’78 bjóða fræðslu sem skiptir máli. Einnig þarf að láta gerendur axla ábyrgð á sínu ofbeldi.“

Kristbjörg víkur sér þá að öðru frelsismáli, en það er réttur kvenna til þungunarrofs í Bandaríkjunum.

„Víðar er pottur brotinn varðandi frelsið. Á hvaða leið eru samfélög þegar tíu ára stúlku sem komin er sex vikur á leið eftir nauðgun er neitað um þungunarrof í Ohio-ríki í landi frelsisins?

Það er þyngra en tárum taki að konur hafi nýlega misst stjórnarskrárvarinn rétt til að ráða yfir eigin líkama í landi þar sem of mikið frelsi til byssueignar veldur því að saklaust fólk deyr ítrekað í skotárásum.“

Hún endar síðan skrif sín á þessum orðum: „Líf okkar er smásaga og við fáum aðeins eitt eintak. Tryggjum að saga allra endurspegli frelsi og hamingju.“

Hægt er að lesa Bakþanka Kristbjargar hér.