Kristbjörg Þórisdóttir skrifar um hvernig er best að nýta tímann í fríi í bakþönkum Fréttablaðsins í dag.
„Sumarið er tíminn,“ er sungið í vinsælu dægurlagi. Þessa dagana eru margir landsmenn á ferð og flugi og sumarleyfistíminn í hámæli.
Sjálf er ég stödd norður í landi í góðu yfirlæti hjá systur minni og fjölskyldu hennar. Ég las nýlega minningarorð um góða konu sem lést því miður langt fyrir aldur fram. Það sem stóð upp úr að mínu mati voru minningar um ferðalög og að hún hafi verið til staðar,“ skrifar Kristbjörg.
„Ferðalag hverrar manneskju er einstakt. Sumir ferðast um Karíbahafið en aðrir verja stund við næsta vatn. Það fyrra þarf ekki endilega að skapa meiri hamingju.
Hamingja er hugarfar. Hin 85 ára Nadine Stair kemst vel að orði þegar hún skrifar um hvað hún myndi gera ef hún gæti lifað aftur. Hún nefnir meðal annars að hún myndi vilja gera fleiri mistök, slaka á, vera kjánalegri og taka færri hluti alvarlega. Sömuleiðis klífa fleiri fjöll, synda yfir fleiri fljót og ganga um berfætt. Nadine fjallar um að eiga fleiri andartök,“ heldur Kristrún áfram.
Hún segir það skiptir máli að njóta hverrar stundar.
„Lífið líður áfram frá andartaki til andartaks. Það sem við skiljum eftir okkur er hvernig þessum andartökum var varið og hvar við vorum þegar þau liðu áfram. Vorum við til staðar í andartakinu með fólkinu okkar eða með hugann fastan í fortíð eða framtíð?
Lífið gerist í andartakinu. Þar verða minningar til og við náum djúpum tengslum við hvert annað. Minningarnar í andartakinu verða svo eins og gimsteinar sem við skiljum eftir við veginn. Nýtum sumarfríið til að hlaða batteríin, vera til staðar í andartakinu og safna gimsteinum í formi minninga,“ skrifar Kristbjörg að lokum.