Kristbjörg Þórisdóttir, sálfræðingur og bakþankahöfundur Fréttablaðsins, segist hafa fundið fyrir stolti í liðinni viku – stolti yfir því að upplifa ungar konur segja hingað og ekki lengra.
„Við lifum sögulega tíma á svo marga vegu. Hver bylgja kófsins rekur aðra. Ekki nóg með það heldur hafa á síðustu árum risið nýjar og nýjar #Églíka-bylgjur,“ segir Kristbjörg í bakþönkum blaðsins í dag og bætir við að nýjasta bylgjan sé kannski sú öflugasta hingað til.
„Allt í einu er ekki lengur pláss fyrir dónakarlinn eða dónakerlinguna í samfélaginu. Allt í einu þurfa meintir gerendur kynferðisbrota að víkja. Tafarlaust. Það er nýbreytni. Áður fyrr snerist umfjöllunin um þolandann. Var viðkomandi að segja satt? Hvað gerði þolandi til þess að kalla þetta yfir sig? Skömmin var þolandans.“
Kristbjörg bendir á að skyndilega hafi þetta snúist við og samfélagið trúi þolendum frekar.
„Því miður hafa of margir orðið fyrir barðinu á einstaklingum sem virða ekki mörk og brjóta á öðru fólki. Telja sig hafa tilkall til þess að gera bara það sem þeim sýnist vegna þess hverjir þeir erum,“ segir hún.
Kristbjörg segist sjálf hafa hitt dónakarlinn oftar en einu sinni.