Kristbjörg Þórisdóttir sálfræðingur skrifar athyglisverðan pistil á baksíðu Fréttablaðsins í dag. Kristbjörg leiðir þar hugann að óhugnanlegum fréttum af ofbeldi meðal ungmenna sem meðal annars hafa beinst gegn hinsegin ungmennum og að saklausu fólki í miðbænum.
„Fyrir nokkrum árum sat ég áhugaverða fræðslu um tölvufíkn unglinga og ungmenna. Sálfræðingurinn sem hélt fræðsluna sagði að sú veröld sem börnin okkar lifa og hrærast í á netinu væri eins og villta vestrið og því þyrftum við að undirbúa börnin vel áður en þau færu inn í þessa veröld. Ég óttast að villta vestur nútímans sé orðið enn villtara og ógeðfelldara,“ segir Kristbjörg í bakþönkum Fréttablaðsins.
Kristbjörg gerir svo áðurnefndar fréttir af ofbeldis- og óhæfuverkum ungmenna að umtalsefni. Hún rifjar upp að einu sinni hafi hún lesið í uppeldisbók að þegar við sem foreldrar erum að ala upp börn okkar sé mikilvægt að leiða hugann að því hvernig manneskju við við viljum sjá eftir 10 til 15 ár og byrja strax að vinna út frá því leiðarljósi.
„Við þurfum frá fyrsta degi að kenna börnum okkar þá hegðun sem við viljum sjá hjá þeim til framtíðar. Ef við viljum að börnin okkar séu þakklát eða góð við aðra þurfum við að kenna þeim það strax. Við þurfum líka að taka mjög ákveðið á hegðunarslysum þegar þau sýna óæskilega hegðun. Ekki síst þurfum við öll að líta í eigin barm og leiða hugann að því hvernig fyrirmyndir við erum fyrir unga fólkið í kringum okkur. Erum við að hampa góðmennsku og góðum dyggðum eða veitum við því neikvæða mikla athygli? Tökum við þátt í eineltismenningu eða virðum sjálf ekki reglur samfélagsins? Erum við tilbúin að samþykkja allt fólk eins og það er?“
Kristbjörg endar svo grein sína á þessum orðum:
„Verum breytingin sem við viljum sjá í börnunum okkar og kennum þeim að lifa sem góðar manneskjur í villta vestrinu.“