Nemandi í Menntaskólanum við Hamrahlíð segist ekki geta kært sig um að þurfa mæta gerendum kynferðisofbeldis á göngum skólans, vera með þeim í verkefnum og sjá þá lifa lífi sínu í engri skömm.
Þetta kemur í fram í færslu nemenda á Twitter sem birtir myndir af mótmælaskiltum en Fréttablaðið greinir frá.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins munu skólastjórnendur funda með nemendum skólans klukkan 11 vegna málsins og hefur Fréttablaðið óskað eftir viðbrögðum skólans.
Með færslunni eru myndir af skilaboðum sem hanga á veggjum skólans en þar er meðal annars spurt, „Af hverju er ég að labba á sömu göngum og nauðgarar?“
Kallað er eftir því að skólastjórnendur geri eitthvað í málunum eða í hið minnsta trúa að þetta setji nemendur í skólanum í hættu.
„Gerið eitthvað for fucks sake ætla ekki að vera í sama skóla og strákur sem er kærður um að hafa nauðgað litlu frænku sinni,“ segir að lokum.
Ég sem nemandi kæri mig ekki um það að þurfa að mæta gerendum á göngunum í skólanum, vera með þeim í verkefnum og sjá þá lifa sínu lífi í engri skömm. pic.twitter.com/ydvNS7nVwg
— svanskvís💃🕺 (@svanskvis) October 3, 2022