Krefjast út­burðar á 25 heimilis­lausum mönnum: „Gríðar­legt högg ef þeir færu á götuna“

Ef ekki næst sam­komu­lag um að á­fanga­heimili í Kópa­vogi fái frest til úr­bóta vegna kröfu slökkvi­liðs um út­burð, lenda 25 hús­næðis­lausir menn á götunni, lang­flestir alkó­hól­istar, um næstu mánaða­mót. Þetta kemur fram ífrétt Frétta­blaðsins.

Í þessum hópi eru vist­menn sem hafa fyrir­gert rétti sínum hjá fé­lags­bú­stöðum og hafa engar bjargir til að út­vega sér hús­næði en slökkvi­liðið krefst út­burðar á grunni þess að eld­vörnum sé á­bóta­vant.
Arnar Hjálm­týs­son, sem rekur heimilið undir merkjum Betra lífs, segir að allt hafi verið gert til að bregðast við kröfum slökkvi­liðsins. Eigi að síður kunni svo að fara að fullum úr­bótum verði ekki náð fyrir næstu mánaða­mót.

„Það yrði gríðar­legt högg og voði fyrir mennina ef þeir færu á götuna,“ segir Arnar. Hann segir að á­fanga­heimilið sé bráða­birgða­lausn. Til standi að flytja starf­semina yfir í annað hús­næði.
Fram kom á Frétta­vaktinni á Hring­braut í gær að þrír skjól­stæðingar Arnars hafa látist á þremur árum meðan þeir biðu eftir að komast í með­ferð.„Síðan við opnuðum hafa tólf ein­staklingar látist, aðal­lega ungt fólk, eftir að þeir fóru frá okkur. Bakkus er mjög grimmur,“ segir Arnar.

Áfangaheimilið við Fannborg.

Mál vegna bruna­varna á­fanga­heimilis við Fann­borg í Kópa­vogi hefur verið í gangi í tæpt ár en ekki hefur verið brugðist við at­huga­semdum frá slökkvi­liðinu og byggingar­full­trúa Kópa­vogs.
Þetta segir Sig­ríður Björg Tómas­dóttir, al­manna­tengill Kópa­vogs­bæjar í samtali við Fréttablaðið.

Sig­ríður segir slökkvi­liðið hafa gert út­tekt á hús­næðinu í ágúst og í kjöl­far þess hafi borist beiðni til byggingar­full­trúa um að hús­næðið yrði rýmt. Gefinn var rúmur frestur til úr­bóta en at­huga­semdum ekki sinnt. Eig­andi hús­næðis er Ár­kór en Betra líf er með húsið á leigu.

„Bruna­varnir í hús­næðinu eru ó­á­sættan­legar og þar sem hús­næðið er skrif­stofu­hús­næði er bú­seta í því ó­heimil. Ekki er hægt að gefa undan­þágu á bruna­vörnum. Þarna búa ein­staklingar við ó­við­unandi bruna­varnir,“ segir Sig­ríður Björg.