Sema Erla Serdar, formaður Solaris, segir mikilvægasta skrefið í heildarendurskoðun á málaflokki fólks á flótta á Íslandi sé að leggja niður Útlendingastofnun.
Solaris eru ein af fjórum samtökum sem standa að mótmælum á Austurvelli í dag. Mbl.is hefur eftir Semu að kveikjan að mótmælunum hafi verið meint ofbeldi í garð tveggja hælisleitenda í anddyri Útlendingastofnunar. Lögregluyfirvöld hafa síendurtekið hafnað því að hafa beitt ofbeldi.
„Þessi mótmæli koma í kjölfarið á þeim atburðum sem við urðum vitni að í vikunni sem er að líða, þegar tveir umsækjendur um alþjóðlega vernd eru lokkaðir á fölskum forsendum í húsakynni Útendingastofnunar þar sem þeir eru frelsissviptir og beittir miklu harðræði og ofbeldi og handteknir og sendir úr landi án nokkurs fyrirvara. Þetta eru aðgerðir sem við höfum ekki orðið vitni að áður og til merkis um aukna hörku hjá yfirvöldum í garð fólks á flótta, segir Sema.
Hún segir markmið dagsins að senda skýr skilaboð um að slíkt verði ekki liðið. Hún segir það ítrekað sjást að afstaða almennings til fólks á flótta sé allt önnur en stjórnvalda og yfirleitt samstaða um að gera betur.
Aðspurð að því hvað hún sjái fyrir sér í stað Útlendingastofnunnar segir Sema:
„Það þyrfti vissulega að vera einhver umgjörð i kringum málefni fólks á flótta, hvort sem það væri sérstakt ráðuneyti eða stofnun eða annað slíkt, það væri þá bara hluti af enduruppbyggingu. Útlendingastofnun í þeirri mynd sem hún er í dag, sem vissulega er byggð upp á vafasömum grunni, er hreinlega bara úr sér gengin, stofnunin gerir meira ógagn en gagn og hana þarf hreinlega bara að leggja niður, og því fyrr því betra.“