Útgerðarfyrirtækið Samherji fer fram á að Seðlabanki Íslands endurgreiði þær rúmu 130 milljónir króna sem fyrirtækið greiddi ráðgjafafyrirtæki Jóns Óttars Ólafssonar. Þetta kom fram í dómsmáli Samherja gegn Seðlabankanum en aðalmeðferð í málinu fór fram í dag.
Jón Óttar starfaði fyrir Samherja og var hans hlutverk meðal annars að safna gögnum vegna rannsóknar Seðlabankans á málefnum Samherja. Kjarninn greindi frá því í dag og vísaði í framburð Jóns Óttars sem sagðist hafa skrifað út reikninga fyrir 135 milljónir króna vegna vinnu sinnar.
Málið hefur vakið talsverða athygli á samfélagsmiðlum og þykir mörgum upphæðin nokkuð há.
Illugi Jökulsson, rithöfundur og fjölmiðlamaður, segir til dæmis um kröfuna: „Jahá. Blessaður kúturinn. Ég vona að hann hafi rukkað Samherja um hvern einasta kaffibolla sem hann fékk sér meðan hann var að pestera Helga Seljan á Kaffifélaginu. Samherji hefur ábyggilega ekki talið eftir sér að borga það, enda félag með mikla og fræga sómakennd.“
Fjölmiðlamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson segir: „Jámm, ég þarf nú aðeins að hugleiða þessa ósk Þorsteins Más, að ég (ásamt öðrum þegnum þessa lands) greiði Jóni Spæjó 130 milljónir. Nokkuð ríflegt en á móti kemur: Hvað er einn keppur í sláturtíð?“
Magnús Þór Hafsteinsson, fyrrverandi þingmaður, deilir frétt af málinu og segir einfaldlega: „ha?!!!“
Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Stundarinnar, deilir frétt Stundarinnar um málið og segir:
„Rannsóknarlögreglumaðurinn sem Samherji réði, og hefur starfað sem eins konar njósnari fyrirtækisins, fékk 131 milljón krónur í greiðslur inn í ráðgjafafyrirtæki sitt frá Samherja, sem Samherji krefst þess nú að verði greitt af Seðlabanka Íslands. Svona er Ísland í dag.“
Undir færslu Jóns Trausta segir Andrés Ingi Jónsson, þingmaður utan þingflokka: „Vilja þeir kannski líka að Seðlabankinn borgi Youtube-auglýsingarnar þeirra?“