Kona með ólæknandi krabbamein á fjórða stigi fékk þau skilaboð á dögunum að lyf sem hún þarf gegn sjúkdóminum séu ófáanleg.
„Lyfin þín eru ekki til og við höfum ekki hugmynd um hvenær þau koma aftur. Eigðu góðan dag og mundu lifið er núna. Það er nákvæmlega svona skilaboð sem að vinkona okkar þarf að eiga við núna,“ skrifaði Tryggvi Rafnsson í færslu á Facebook síðu sinni.
Hann segir vinkonu sína vera með fjórða stigs krabbamein og því ótækt að lyfin séu ekki fáanleg. „Hún mun alltaf þurfa að vera í lyfjameðferð og svo kemur á daginn að eitt af lyfjunum sem eru henni lífsnauðsynleg eru ekki til á́ landinu.“
Lyfið sem um ræðir kallast NAVELBINE og segir Tryggvi konuna ekki hafa fengið nein svör frá krabbameinsdeildinni um hvert hún eigi að snúa sér. „Það er ekki vitað hvenær þau eru aftur væntanleg til landsins og svörin eru nákvæmlega engin.“
Tryggvi furðar sig á því að slík vinnubrögð fái að viðgangast í heilbrigðiskerfi landsins. „Það er eins og engin segi neitt og að þetta sé bara „obbossí og ansans vesen“ að leggja þetta á́ hana og aðra sjúklinga sem verða að fá́ þessi lyf.“
Kostnaðurinn eigi ekki að skipta máli þar sem lyfin skipti sköpum fyrri krabbameinssjúklinga. „Ofan á allt annað bætist svo hræðslan, kvíðinn og óttinn.“