Elísabet Guðmundsdóttir lýtalæknir hefur ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu, en hún greinir frá því á Facebook-síðu sinni að óprúttnir aðilar hafi grýtt eggjum í hús hennar í gærkvöldi.
„Ofbeldið gegn mér tekur engan enda og netníðingar farnir að ráðast á mig a heimili mínu og ég hef sent börnin mín i öryggi. Ég er særð, leið, hrædd og vanmáttug, er beitt ofbeldi og einelti ekki aðeins yfirvalda og lögreglu heldur einnig samlanda minna,“ segir hún.
Eins og þekkt er orðiðneitaði Elísabet að fara í sýnatöku og sóttkví við komuna frá Danmörku í desember síðastliðnum, en hún hefur haft sig nokkuð í frammi vegna sóttvarnaraðgerða yfirvalda. Í liðinni viku birti hún svo myndband af því þegar hún var handtekin af lögreglu, en að sögn lögreglunnar var hún færð á lögreglustöð þar sem hún hafði ekki mætt í skýrslutöku eins og henni bar að gera.
Í færslu sinni á Facebook í gærkvöldi birtir hún mynd af eldhúsglugganum á heimili sínu sem er allur út í eggjum. Hún segir svo í færslunni að henni hafi borist alvarlegar hótanir, til dæmis um barsmíðar, nauðganir og líflát og þá hafi hún í tvígang beðið lögreglu um vernd. Vandar hún lögreglu ekki kveðjurnar í færslu sinni.
„Það er óraunverulegt það sem komið hefur fyrir mig undanfarnar vikur. Glæpur minn sem þið dæmið og kastið steinum í, er að hafa rætt opinberlega hvað þið þjóð mín getið gert til þess að styrkja ónæmiskerfi ykkar og bent á langtíma áhrif félagslegrar einangrunar og grímunotkunar á börnin okkar,“ segir hún og bætir við:
„Það kæmi varla nokkrum manni á óvart ef ég hyrfi eða hreinlega fyndist dáin vegna „sjálfsvígs” eða létist „af slysförum”, en slíkt hefur svo sannarlega gerst á Íslandi margoft áður þegar ekki tekst að þagga fólk.“
Elísabet greinir svo frá því í færslunni að hún hafi verið stöðvuð alls sex sinnum af lögreglunni á undanförnum þremur vikum. Í eitt skipti, að hennar sögn, vegna gruns um að hafa ekið of hægt af stað á grænu ljósi og vegna gruns um að hafa ætlað grímulaus inn í verslun.
„Loks var ég handtekin sl fimmtudagskvöld eins og ég væri stórhættulegur vopnaður glæpamaður þegar ég var að keyra vin minn heim. Í dag hefur svo fólk ráðist að mér á heimili mínu sem töluvert þarf að leggja á sig til að komast að. Ég get ekkert leitað þegar öryggi barna minna og mín er ógnað og vil biðja þjóð mína um stuðning gegn þessu áður en það verður of seint.“