Kostar 15 þúsund krónur á landsfund Sjálfstæðisflokksins

Athygli er vakinn á því í Fréttablaðinu að aðgöngumiði á landsfund Sjálfstæðismanna kostar litlar 15 þúsund krónur en Landsfundur Sjálfstæðismanna var settur í gær klukkan 16:30

Veittur er þó 4 þúsund króna afsláttur til námsmanna og öryrkja sem greiða þá 11 þúsund krónur vilji þeir fá aðgang.

Kosið verður um formann flokksins á landsfundi Sjálfstæðismanna um helgina og eigast þeir Guðlaugur Þór Þórðarson og Bjarni Benediktsson við í keppninni um sætið. Bjarni hefur leitt flokkinn síðan 2009 og leitast hann nú eftir að tryggja sér sætið á ný.

Kosið verður um formannssætið á morgun, Sunnudag um hádegisleytið.

Það ber þó að vekja athygli á því að uppselt er á fundinn.