Nanna Hermannsdóttir vakti athygli á því að Twitter í dag að hennar fólk í Viðreisn væri uggandi yfir smölun nýs frambjóðanda í prófkjöri Viðreisnar í Reykjavík. Hún deilir skjáskoti af frétt frá Kjarnanum þar sem kemur fram að Viðreisnarfólki í Reykjavík hefur fjölgað um 700 í aðdraganda prófkjörsins.
Mitt fólk í Viðreisn er uggandi yfir smölun nýs frambjóðanda pic.twitter.com/Vn8h8pQvQS
— Nanna Hermannsdóttir (@nannahermanns) March 5, 2022
Karen Kjartansdóttir, kosningastjóri Þórdísar í Viðreisn, segir að vélin í kringum hana hefur ekkert að gera með þessi skilaboð. „Við getum ekki gert að því hvað fólk segir í öðrum flokkum og ekki myndi ég vilja vinna með týpu sem ekki léti málefni ráða heldur persónur.“
Nanna, við Þórdís (vélin í kringum hana) höfum ekkert að gera með þessi skilaboð sem þú ert deila. Við getum ekki gert að því hvað fólk segir í öðrum flokkum og ekki myndi ég vilja vinna með týpu sem ekki léti málefni ráða heldur persónur.
— Karen Kjartansdottir (@karenkjartansd) March 5, 2022