Kórónaveiran hefur stökkbreyst í tvær tegundir. Önnur er mun skæðari en hinn. Þetta er niðurstaða kínverskrar rannsóknar. Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómalækninga Landspítalans, segir í samtali við vef Morgunblaðsins að samkvæmt rannsókninni hafi stökkbreytingin átt sér stað snemma. Eru týpurnar nefndar L og S. L-gerðin er algengari og skæðari.
Spurður hvort ástæða sé til þess að hafa áhyggjur af þessari nýju uppgötvun segir Már:
„Ég myndi hvorki vera áhyggjufullur né glaður yfir þessu. Við munum leggjast yfir þetta í framhaldinu og spekúlera.“
Már segir á öðrum stað að þegar veirur stökkbreyti sér geti það haft þau áhrif að erfiðara sé að þróa bóluefni eða lyf sem nýtist í baráttunni gegn þeim.
„Þetta er til dæmis einn eiginleiki HIV veirunnar, hún er alltaf að breytast. Það hefur gert nánast ómögulegt að búa til bóluefni gagnvart henni. Svo eru aðrar veirur eins og mænuveikin og mislingar sem eru það stöðugar að þó að þær sé ákveðinn breytileiki í þeim þá er bóluefni afar gott gegn þeim. Það gildir ekki eitthvað eitt um allar veirur.“