Körfuboltahetjan Jón Arnór ósáttur við Dag: „Hefur ekki enn séð sér fært að mæta“

Jón Arnór Stefánsson, einn besti körfuboltamaður okkar Íslendinga frá upphafi og íbúi í Laugardalnum, er ekki sáttur við Dag B. Eggertsson borgarstjóra.

Jón Arnór skrifar áhugaverða grein sem birtist á vef Vísis í dag þar sem hann gerir málefni Laugardalsins að umtalsefni – nánar tiltekið skort á íþróttahúsi fyrir þá fjölmörgu sem æfa íþróttir á svæðinu. Fyrirsögn greinarinnar er: „Er Degi alveg sama?“

„Síðastliðið haust hlustaði ég á viðtal við Dag B. Eggertsson þar sem hann sagði frá því þegar hann sem unglingur þrýsti á Davíð Oddsson, þáverandi borgarstjóra Reykjavíkur, að byggja íþróttahús í Árbænum. Krakkarnir í Árbænum upplifðu hverfið sem mjög vanrækt úthverfi og tóku til sinna ráða,“ segir Jón Arnór.

Hann segir að þessa tilfinningu þekki þeir sem búa í Laugardalnum.

„Þar er ekkert fjölnota íþróttahús til staðar fyrir þá sem stunda íþróttir með hverfisfélögunum Ármanni og Þrótti. Staðreyndin er sú að Laugardalurinn, sem er samkvæmt borginni stærsta uppbyggingarsvæðið í dag, er eina borgarhverfið þar sem íþróttahús vantar fyrir íþróttafélögin sem þar halda úti starfsemi,“ segir Jón Arnór en með greininni fylgir kort sem sýnir þetta svart á hvítu: Ekkert íþróttahús er í Laugardalnum þar sem Ármann og Þróttur eru með aðstöðu á meðan önnur hverfi borgarinnar hafa sín hús.

„Þeir sem þekkja til starfs íþróttafélaga vita hversu mikilvægu hlutverki félögin og íþróttaaðstaðan gegna í félags- og forvarnarstarfi. Það gera þau með því að búa til umgjörð fyrir hreyfingu og samveru. Hápunktur dagsins hjá mörgum krökkum er að fara í íþróttahúsið í hverfinu sínu að æfa og hitta vinina. Íþróttaviðburðirnir sem þar fara fram skapa líka stemmningu og sameina fjölskyldur og vini sem mæta til að horfa á viðburðina, en ekki síður til að hitta aðra úr hverfinu. Þetta ætti Dagur að geta vitnað um, t.d. eftir að hafa mætt á úrslitakeppnina í körfuboltanum í íþróttahúsi KR,“ segir Jón Arnór.

Hann bætir við að iðkendur í Laugardalnum þekki þetta hins vegar ekki úr sínu hverfi.

„Þar er þetta ekki í boði. Degi hefur verið boðið að koma í heimsókn til að sjá með eigin augum þá bágbornu aðstöðu sem krakkar sem æfa körfubolta hjá Ármanni búa við. Körfuknattleiksdeild félagsins er ein sú fjölmennasta í Reykjavík með rúmlega 300 iðkendur, en krakkarnir þurfa að gera sér að góðu að æfa í agnarsmáum íþróttasölum Laugarnes- og Langholtsskóla, rýmum sem eru á stærð við áhaldageymslur íþróttahúsa annarra liða. Dagur hefur ekki enn séð sér fært að mæta.“

Jón Arnór vísar svo í nýlega fyrirspurn Steinars Kaldal, þjálfara hjá körfuknattleiksdeild, þess efnis hvort þær 100 milljónir sem kynntar voru í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2022 sem fjármagn til íþróttahúss við gervigrasvöllinn í Laugardal væru ekki örugglega fyrsta skrefið í byggingu íþróttahúss fyrir Ármann og Þrótt.

Eitthvað virðist djúp á svörum frá borgaryfirvöldum.

„Borgarfulltrúar meirihlutans hafa kosið að svara engu. Enn á ný virðist strategían vera sú að þvæla umræðu um þjóðarhöll inn í málið og forðast þannig að gefa skýr svör. Mig langar því að spyrja aftur. Stendur til að byggja fjölnota íþróttahús fyrir íþróttafélögin í hverfinu, eða er Degi og félögum alveg sama um íþróttaiðkendur hverfisfélaga Laugardalsins?“